Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

laugardagur, ágúst 28, 2004

Schvarta Ecchjan mætt á svæðið!



Guuuðminngóður sjáið hvað nýji bíllinn minn er óGEÐslega Ógeðslega ógeðsLEGA flottur! Daewoo hunchback frá ´99 (so tonight were gonna party like its nineteenninetynine...)sextánhundruð vél, fjárstýring í ópnunarsýstemínu, rafmagn á hinum dónalegustu stöðum, beinstífur.. ehh ég á við beinskiptur, vökvað stýri, smúúúð á við groddalegan jarðarberjasjeik og svo toppurinn.. KENVÚDD græjur með geislaspilara! Óli fyrrverandi tengdapabbi (pabbi hennar Tótu vinkonu) væri STOLTUR af mér! STOLTUR segi ég! já eða hefði mögulega verið stoltur ef hann væri ennþá að flytja inn þennan eðalhávaðavald..

Aglavega, nú kemur getraunin.. sá sem getur giskað rétt á aurafjöldann sem við létum fyrir ekkjuna fær óvæntan glaðning.. og Hildigunnur, þeir sem VITA mega ekki GISKA!;)

hehehe verð nú að segja ykkur soldið fyndið í leiðinni, setti Bláu Þrumuna á sölu í blaðinu í gær, fór auðvitað svo að bíllinn var seldur kl 5 mínútur yfir 9 í gærmorgun á.. haldið ykkur fast.. SEXTÍUÞÚSUND FEITA! og þetta er bíllinn sem hann Sigurjón Toppeigandi dró mig afsíðis og sagði um: ég tek þennan bíl ALDREI aftur inn á verkstæði í viðgerð!! Gaurinn sem keypti ógeðslega slísí braskari, sem betur fer, gæti ekki hafa lifað við sammarann sem hefði fylgt því að selja hana einhverri einstæðri móður úr Breiðholtinu eða eitthvað, bíllinn gjörsamlega að detta í sundur :D