Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

sunnudagur, apríl 10, 2005

skemmtun aldarinnar..

verður haldin á þriðjudagskveldið í Tónlistarhöll Kópavogs, hinum stórfenglega SAL klukkan átta eftir hádegi.

Þar munu leika fyrir dansi Væla nokkur Veinólínó, ásamt meðhjálpara og einum litlum tenór.

Munum við hefja upp raust okkar og klífa þar hin misjöfnu fjöll alvarleika og fágunar sem og fáránleika og ófágunar þó megi með sanni segja að heldur muni halla á hið fyrrnefnda í þeirri samkeppni þar eð við munum flytja ljóðaflokka eftir Davíð Þór Jónsson við lög minnar kæru systur og Þórarin Eldjárn þar sem lagasmiður er húmoristinn mikli af guðs náð Tryggvi M. Baldvinsson.

Meira um gjörninginn hér.

/>

Góða skemmtun.