Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

mánudagur, september 05, 2005

haustkvefdrulluhálsbólguógeðspestin..

bráði af dívunni sem snöggvast í gær þegar í ljós kom að hér í borg er indæl kona sem hefur ákveðið að láta af hendi rakna forláta píanó til frekari stórafreka á vængjum tónlistarinnar.

ekki schlæmt, ekki schlæmt :D

aurarnir sem henni voru gefnir í tilefni.. (ehrmmm) 22 ára afmælis hennar um daginn og ætlaðir voru til þesslags hljóðfærakaupa fara þess í stað í hljómdiskaframleiðslu frú Vælu og vonum vér að eigi verði mikið um mótmæli af þeim völdum.