Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

sunnudagur, október 02, 2005

oh

undanfarið hef ég verið að reka augun í prógramm myndir af fólki (fínar portrett myndir notaðar til auglýsinga) sem hafa augljóslega verið lagaðar til..

mig langar ROSALEGA í svoleiðis..

hver er góður á fótósjopp og langar að vinna fyrir engan pening við að laga þessa:



Hér eru augljóslega nokkrar hrukkur, skakkar og/eða gular tennur og ör sem má pússa, slípa örlítið af undirhökunni og kinnfiskasoga pínupons, hækka mætti kinnbeinin örlítið og síkka hárið og bæta í það smá slettu af glansi. Því til viðbótar mætti svo skella boddíinu af henni beónsí neðan á og já, svo langar mig rosalega til að vera í lit aftur.