Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

mánudagur, september 26, 2005

púkapælingar

Hann Ármann varð fyrir vitjun púka í fyrrinótt og hvíslaði að honum einhverjum andstyggilegheitum. Eftir að hafa áreitt ármanninn gerði púkakikvendið sér ferð í Ásgarðinn í gærkveldi og fór að gargast í mér þar sem ég sat og horfði á súmóglímukappa á einhverri svitastöðinni (það er nefnilega allt morandi í þeim í algjöradraslsjónvarpinu, maður lætur sig hafaða fyrir bíbícípræmið og diskóverið.)
Hann var svo andstyggilegur þessi púki að ég GET eiginlega ekki haft eftir hvað hann sagði.. og auglýsi hérmeð eftir áskorunum lesenda til mín að hafa það eftir svo ég geti með góðri samvisku bloggað um það ;)

Tveir í viðbót á linkalistann, auður karítas mín ágæta vinkona bloggar frá stóraeplinu og svo er ég lengi búin að vera á leiðinni að henda inn blindgötuflakkaranum henni Tótu pönk.. gersovel.