Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

sunnudagur, september 18, 2005

fortíðarþráin

stolið frá fellibylnum sem stal frá stínufínu:

1. Go into your LJ’s /blogs archive.
2. Find your 23rd post (or closest to).
3. Find the fifth sentence (or closest to).
4. Post the text of the sentence in your blog along with these instructions.

here goes:

"Og snilld dagsins frá 3 ára krílinu var:

Á klóinu:

mamma: pabbi þinn hefur sett þig í öfugar buxurnar..

Ragnheiður Dóra:
Já, hann er svo öfugsnúinn."

Og í tilefni af þessu skemmti ætla ég að koma með tvær snilldir dagsins frá FIMM ára barninu (er sko ekkert kríli lengur.. heldur lengja..)

fyndna barnið að koma inn í drekkutíma:

Ragnheiður Dóra: GÓÐAN DAGINN! og velkomin í KASTLJÓSIÐ!

fyndna barnið orðið syfjað:

Ragnheiður Dóra: mamma á ég að fara að sofa núna?

Mamma:
já.

Ragnheiður Dóra: er það af því að klukkan er orðin smart?