Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

mánudagur, september 12, 2005

bloggsplogg

ÆI er ekki að nenna þessu þessa dagana..

af hverju í ósköpunum er ég með eitthvað samviskubit yfir því að nenna ekki að blogga? ég sver það, skylduræknisgenið er allt of sterkt. Það er ekki eins og ég sé að blogga fyrir neinn nema sjálfa mig.

Ég er hætt þessu samviskubitskjaftæði og byrja bara aftur þegar mér sýnist.

EF mér sýnist.