Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

fimmtudagur, september 22, 2005

klukkan hvað?

okok.. skal blaðra eitthvað hérna um sjálfa mig.. en það er bara af því að ég er auðvitað narcissisti dauðans eins og allir vita :D

1) ég er nett viðkvæm fyrir því að vera svona "vertically challenged" eins og maður segir í politically correct rauðhettubókum, á góðri íslensku oft nefnt dvergur (þó ekki samlokudvergur þar sem ég vinn ekki fyrir þá bræður í sorginni, sóma eða júmbó.. bleh). Því tek ég skýrt fram þegar ég þarf að segja hæð mína að ég sé einnsextíuogtveir OG HÁLFUR! þessi hálfur gerir jú allan muninn ekki satt ;)

2) ég hef verið svo heppin að flakka töluvert um heiminn og hef tvisvar ferðast töluvert á Spáni og líkað afskaplega vel. Þess vegna þoli ég ekki þegar fólk sem fer á hverju ári til Benidorm eða viðlíka viðbjóðsstaðar, gistir á sama hóteli sem einhver þýskarinn á, borðar á sömu stöðunum sem eru með matseðil á íslensku þar sem auglýstir eru aumeríser hambúrgarar á tilboðsverði og eru með skítamóral í græjunum, fullyrðir að hafa farið OFT til Spánar. Afsakið mín kæru, þið hafið AAALDREI komið til Spánar.
Mæli með því, það er næs!

3) var trúlofuð á unga aldri, 3 ára að mig minnir, besta vini mínum Pétri Gauta.

Hann er nú kominn út úr skápnum.

Ég vil ekki trúa því að þetta tvennt tengist á nokkurn hátt.