Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

miðvikudagur, maí 19, 2004

VÆLA Í JÚRÓ 2005!!!! (plagöt og barmmerki má nálgast í fiskbúðinni Verinu, Ásgarði, Suðursveit)

Sökum leyndrar aðdáunar minnar á EVRÓ-vision (orðskrípi dagsins, sjá nánar OfurBloggarann StóraBróður) og hinnar sterku þrár minnar að fá að taka þátt í fyrrnefndri keppni hef ég ákveðið héðan í frá að koma ALDREI fram opinberlega nema í óskilgreindum bleikum tvískiptum fatnaði sem getur ekki ákveðið sig hvort hann sé uppáhaldsbúningur ástralskrar samkvæmisdanskonu á eftirlaunum (berist með 3 tonnum af brúnkukremi og ljósröndóttum strípum) eða fyrrverandi brúðarkjóll sem lenti í áflogum við 3 ketti og spreybrúsa með ljósbleiku lakki..

já eða auðvitað gæti ég líka sungið í hvítum jakkafötum..

þetta tel ég vera örugga leið til að vekja á mér athygli hjá ráðandi öflum (lesist markúsi erni eða klisjulagahöfundum landsins). Óskið mér góðs gengis allir!