Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

mánudagur, desember 20, 2004

þrettánda það..

búin að finna lausnina. Held bara upp á herlegheitin á þrettándanum, allir fá þrettándagjafir og þrettándakort frá mér og meira að segja aðeins feitara svín og gerjaðra jólaöl. Já það er bara allt jákvætt við þetta mínir kæru lesendur.

Og það besta er að þá verður allt komið á útsölur þannig að ég fæ nýja sparidressið á skíð og íngentíng og jóla- afsakið, þrettándaskrautið á pínötts.

Hver segir eiginlega að Jesú hafi fæðst þann tuttugastaogfimmta? var það ekki bara "um þessar mundir"? hef hvergi séð neina pappíra yfir það allavega..

GLEÐILEGAN ÞRETTÁNDA ÖLLSÖMUL!