Múhahahahaha
Baggalútur getur verið óendanlega fyndinn.. en að öðrum ólöstuðum er það Enter kallinn sem ræður ríkjum þar á bæ..
Ætlaði að koma með link á þessa grein eftir hann en what the heck, hér kemur hún:
Baráttudagur kvenna
Ásamt því að sækja um launahækkun eru íslenskar konur hvattar til að:
Sofa yfir sig.
Fara í sömu nærföt og í gær.
Pissa á setuna - og útfyrir, ef tími vinnst til.
Mála sig ekki - og alls ekki raka.
Mæta of seint í vinnuna - sparka í stimpilklukkuna.
Fara strax í kaffi - kvarta yfir því að það sé a) of kalt b) of sterkt c) of svart.
Prumpa.
Reyna við undirmennina - eða bara klípa þá í tippið.
Fara of snemma heim - biðja næturvörðinn að stimpla sig út.
Flauta á alla karla í umferðinni og senda þeim fingurinn - eða ulla.
Gleyma að sækja börnin á leikskólann.
Setjast fyrir framan sjónvarpið um leið og komið er heim.
Fá sér bjór.
Urra - jafnvel bíta - ef einhver spyr eftir kvöldmat.
Ropa.
Sofna yfir Idol.
Fá sér bjór.
Leggjast í öllum fötunum í rúmið og helst strá yfir það brauð- eða kexmylsnu.
Sofna áður en makinn nær að bursta tennurnar.
Hrjóta.
Etr.
Bið hérmeð náðarsamlegast um leyfi til að birta efni frá þér á bloggsíðunni minni Enter minn ;) blikkblikk (hei, betra er seint en aldrei..)
<< Home