Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

miðvikudagur, apríl 07, 2004

LEEEETIBLOGGARI!!!

eða ekki.. sjaldan haft jafn mikið að gera og þessa dagana... sem er gott er þakki? allavega betra en hitt..

Ætla líka á eftir að opna einn búddvar og horfa á the office..

það eru frábærir þættir..

fór einmitt að pæla í því um daginn hvað það er fyndið að horfa á ER og svo Office beint á eftir, ER er nebblega alltaf að verða meira blood og gore dæmi, verða að gera það til að fólk hafi áfram áhuga á að horfa á þá.. núna er í hverjum þætti grýtt eins og tveimur kjarnorkusprengjum beint á spítalann og ampúteraðir læknar hlaupa um gangana með brjálæðisglampann í augunum og bekkenið í hendinni..
svo koma David Brent og félagar með álíka blood og gore þátt.. nema bara andlegan. Þvílík átök að horfa á þessa þætti! þarna situr maður marguppásnúinn af blöndu af hryllingi, hjásérfari og almennum pínlegheitum.. horfir með forundran á skjáinn og hlær af og til hvellum geðveikishlátri.. HAHAHAAHHA! og heldur svo áfram að kveljast..

það er leitun að annarri eins snilld :)