Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

fimmtudagur, maí 27, 2004

eins dauði er....

Tvær jarðarfarir í dag, önnur með sólói og hin í kvartett + umsjón, bara kúl fyrir bankareikninginn. Orðinn helvíti góður peningur í þessu, en mér finnst nú samt alltaf óþægilegt að vera glaður yfir að einhver hafi dáið.. get ekki að því gert! Enda er ég búin að ákveða það að dagurinn sem ég vökna ekki um augun þegar kistan er borin út er dagurinn sem ég hætti.

En að örðu, frábært blogg hjá Mumma í dag! ég rúllaði bara um gólf hérna..