Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

fimmtudagur, desember 21, 2006

fréttatilfinning gjöriði svo vel

Föstudaginn 22. desember næstkomandi kl 21.00 í Neskirkju, Hagatorgi munu Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Steingrímur Þórhallsson orgelleikari halda árlega kyrrðar og íhugunartónleika sína. Í þetta sinn verða á efnisskránni gömul íslensk sálmalög í bland við tónlist Johanns Sebastians Bach.

Tónleikarnir eru hugsaðir sem mótvægi við hinn mikla hraða sem einkennir jólahald á okkar dögum og er þetta tilvalið tækifæri fyrir fólk að koma í miðjum jólaundirbúningi, setjast niður í kirkjunni sem verður aðeins lýst með kertaljósum, hlusta á fagra tónlist og komast í snertingu við hinn sanna anda jólahátíðarinnar og krisninnar.

Hallveig Rúnarsdóttir og Steingrímur Þórhallsson eru listamenn af yngri kynslóðinni sem hafa vakið mikla athygli undanfarin ár fyrir tónlistarflutning sinn. Þau hafa starfað saman við Neskirkju síðastliðin ár, þar sem þau stofnuðu ásamt fleirum tónlistarhópinn Rinascente.

Aðgangseyrir að tónleikunum eru 1500 krónur en 500 krónur fyrir aldraða og námsmenn.

ehá og einmitt, þannig var nú það, endilega mætið nú og slappið af ;) fyrir sýnishorn af dagskránni má kíkja á endann á tíu fréttum kvöldsins.