Væla Veinólínó

geðsveiflur dívunnar..

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

bjánahrollur

jæja...


er þetta ekki orðið gott bara af blaðri í sjónvarpinu.. þetta er bara orðið pínlegt.

jújú þeir unnu silfur en kommon! bruðl dauðans og blaður um hvort þeir hafi fengið sæmilegan mat í flugvélinni og að það sé nú heldur betur gott að þeir hafi fengið eitthvað að borða á Kjarvalsstöðum, Gísli Einars heldur að Lúðrasveit sé handboltaliðið osfrv.. frrrrekar fyndið sko!

sunnudagur, ágúst 24, 2008

rockin´ with the Mozzi

Einstaklega skemmtileg stund í Dóm í gær þar sem við Jón Svavar stórbarítónari, Solla ofurmezzóbeib og hrönnsla plúseinn(viðurnefni sökum ógurlegrar óléttu þessarar frábæru slaghörpudísar) troðfylltum eyru troðfullrar kirkju af konfekti Mozza gamla eins og okkur einum er lagið.. jájájá

Frasa dagsins átti þó Nonni sæti sem laumaði út úr sér þegar ég var að skakklappast út í bíl: ég myndi segja brjóttu löpp en... tíhí ;)

Verð samt að segja ykkur hundtryggu aðdáendum mínum að það er þokkalega krefjandi að syngja aríuna Come Scoglio standandi á einari.. bleh

og svo vil ég bara benda á í lokin að ég hef ALLTAF verið miklu meira fyrir silfur en gull.. og hananú!

föstudagur, ágúst 15, 2008

svart.. koolsvart

Það er eitthvað einstaklega tragíkómískt við það að hafa júdókeppni kvenna - þungavikt beint á eftir fimleikakeppninni...